I got my mojo back .................................og fleiraíris jónsdóttir

Iím just loving it......
Jæja eftir öskurfærsluna síðustu er nauðsynlegt að koma með eitt gleðiblogg
Er ekkert að grínast fann Mojoið aftur ....var út í brekku að reyna halda litla risanum mínum á löppum
Var að kenna honum á skíði og þar sem honum fannst ekstra fyndið að mamman bað hann að beygja hnén og rassinn út ...þá varð  hann máttlaus úr hlátri meðan við gerðum heiðarlega tilraun til að renna niður , sem endaði á því að hann hékk á mér ( var reyndar eflaust hálffáranleg sjón þar sem hann nær mér upp að brjóstum ) mest alla leiðina ....
En þetta tókst á endanum og farin að renna sér einn þar til hann rúllar á rassinn

Svo næsta verkefni er að fá hann til að læra að stoppa tók það ekki í mál í þetta skiftið því þá rennur maður ekki hratt Cool er sko ofurgaur sagði hann og þeir renna hratt ...

Og þarna fann ég Mojoið mitt í brekkunni að drösla honum á fætur og hann hlammaði sér á mig og sagði mér svo að ég væri bara best i heiminum ...en afi kæi væri engill og hann hefði verið bestur en þar sem hann væri að hjálpa guði þá er ég núna best ......Smá útúrdúr 

þarna í brekkunni öll út í snjó blár himinn með sólargeislum og fann að ég er öll að koma til
Hef verið með smá viðskilnaðar kvíða þar sem prinsinn er að fara til pabba síns í viku og mikið leiðist mér þegar hann fer svona lengi en   málið er bara að hann á frábæran pabba , frábæru fósturmömmu og litla systir og það væri bara ósanngjarnt að leyfa þeim ekki að upplifa þennan yndislega dreng jafn mikið og ég

Það hefur verið ansi tómlegt í húsinu án hans og ég ekki alv vitað hvað ég ætti að gera af mér með allt í einu minni vinnutíma og prinsinn í burtu og unglingunum finns ekkert úper kool að hanga með mömmu

ar eitthvað sem ég gerði mikið af áður en pabbi veiktist.

Í fyrsta sinn síðan í okt 07 fann ég að ég er tilbúin að njóta alv þess sem lífið hefur upp á að bjóða.. ekki lengur með fyrirvörum ...hika og ritskoðun og hætta að hugsa of mikið... vera pínu kærulaus og vera happy klappy ..
Annars er allt í góðum gír hér nema erum enn þá að eiga við álfinn sem tekur allt sem hverfur þar sem engin á heimilinu kannast við að hafa fengið lánað ...

....Eina sem ég er ósátt við eru fjandans kosningarnar sko vildi kosningar
 en uppgvötaði svo að ég veit ekki hvað í ósköpunum ég á að kjósa ..... Vil bara að fá að kjósa fólk fullt af góðu fólki í öllum flokkum en fullt af algerum liðleskjum líka álíka traustvekjandi og Gosi þegar hann var upp á sitt besta  urrrg 
hef alltaf pælt í því og var mér kennt að taka það alvarleg að kjósa     engan fífla skap sagði mamma alltaf ( var alltaf að þykjast ætla að kjósa
x d )

Er með harðger kommagen í báðar áttir ....


Fyrir utan það er Baráttugenið í toppi
ljótan er aðeins búin vera að yfirtaka síðustu daga en Botox og felulitir bjarga því :)
Unglingarnir sjást á matartímum og þegar þeim vantar hrein föt ...reyni nú að bjarga matnum en er alveg í strike að þvo af þeim sem er eflaust ástæðan fyrir því að hreinu fötunum mínum fækkar óðum haha


Life is bjúttifull og Pollý alveg í bana stuði
Over and out


sprungin á fleiri vegu en einníris jónsdóttir

Hæ það er svo magnað að þó ég tali um þessa hluti við vini , sérfræðinga þá er ótrúlega mikil þörf fyrir að fá útrás á netinu þessa daganna ,,,hálffyndið miðað við hvað ég fel þetta blogg
Kannski er þetta svipað og að rjúka upp á fjall og öskra úr sér lungun þessi útrás Yell..veit ekki

út af hverju er ekki hægt að lækna meiðsl sálarinnar með kossi og plástri eins og gert var við allar rispur þegar börnin voru lítil ?
Veit svo sem alveg svarið en þetta er eins og með draumakastalann minn úr mamma mía myndinni
óskastaða sem á sér ekki séns í raunveruleikanum ...en mig langar samt

Það er svo skrítið að það er einhvern veginn þannig að ég næ ekki hegðun minni í þessu máli get orðið eins og ljón að berjast fyrir betra og hamingjuríkar lífi henni til handa set hausinn undir mig , veð áfram og ætla ekki gefast upp fyrr en hún er tilbúin að berjast sjálf , að hún finni viljan aftur til að hlæja , finnast hún þess verðug , sjái hve falleg og yndisleg hún er ..að hún fái uppreisn æru hjá sjálfri sér fyrst og fremst .
Loksins er eitthvað að gerast búin að finna frábært fólk sem ekki bara vill heldur tekur skrefin í þessa átt með mér og viti menn er algjörlega sprunginFrown

Ég hefði aldrei ímyndað mér allar þær tillfinningar sem komið hafa upp í þessu ferli áður en hún ........
reiði rosaleg reiði ...örvænting úrræðaleysi , vonleysi og gríðarleg væntumþykja og ef hægt væri að pakka henni inn í bómul þar til að þetta liði hjá væri ég búin að því  ....en get það því miður ekki
Sektarkennd hjá mér sem ég veit ég á ekki að hafa en geri samt ...einn daginn fer hún en í dag lúrir hún á bak við og skellir sér fram þegar hún missir vonina verður hrædd ....hausinn á mér fer af stað bara ef ég hefði ekki.... en veit út af hverju ég á ekki að hugsa svona svo  það kemur einn daginn
Það versta við allt þetta er
Ef mér líður svona þá veit ég að get tvöfaldað þetta og kannski kannski get ég sett mig í hennar fótspor ....

ég get ég skal og ég mun ....vonandi :)

Kv Ofurmamman ...stundum allaveganna

Svo vil ég segja að ég er frábær og hún er frábær og allir aðrir líka... taka smá Secret hérna :)
PS elsku vinkonur er hress ekkert panikk ...er bara að hvíla á ykkur eyrun með þessu hahaha

Biluđ tölva,,,,íris jónsdóttir

Hei þið örfáu sem ég hef þorað að segja frá blogginu ....tölvan er biluð blogga um leið og tölva í lagi birtist á heimilinu .......Kv Britney

skrítna skemmtilega ég .....:)íris jónsdóttir

Hvað er málið var að máta peysu áðan og fann fyrir vott af maga og ætlaði að rífa mig úr henni ...
Ég er 35 ára gömul frekar vel á mig komin lít bara nokkuð vel út miðað við aldur og fyrri störf .....Smile
En samt er þarf ég að minna mig reglul á það að það er ekki sanngjarnar kröfur að líta endalaust út eins og tvítug barnlaus ofurskvísa

Ég ítrekað hef barist við útlitsdýrkun dett samt í hana 24/7 og meðan ég er þar er ég að minna dætur minar á að það er ekki málið vellíðan innri sem ytri er það sem á að hugsa um en ekki hvort að maginn sé stór í þessum bol

Ég fór á vikt eiginl alveg óvart fyrir áramót og vissi þá í fyrsta sinn á síðustu 3 árum hve mikið ég viktaðist og var frekar hissa ....
Hingað til hef ég frekar farið eftir því ef buxur þrengjast þá þyrfti ég aðeins að skoða matinn en ekki mikið

ég vil ekki vera svona vil þykja vænt um slitin mín sem komu þegar börnin mín komu í heiminn .

ég vil þykja vænt um örin mín sem komu á sama tíma

ég vil þykja vænt um minnkaða brjóstastærð sem komu af sömu ástæðu

ég vil horfa á hrukkurnar í speglinum og þakka fyrir öll árin sem sköpuðu þær

alla reynsluna sem voru vonbrigði , sársauki , gleði og hamingja



Öll reynsla er góð því sú slæma kennir manni að meta þær góðu og svo góða hjálpar manni að komast yfir þær slæmu

Lexíur ég ætla að líta á allt sem lexíur....

ég er skrítin ...skemmtileg ....innilega ótrúleg og mun eflaust koma til með að kanna bumbuför á næstu dögum bara ekki of oft

KV Pollý

Kreppa .......og bara eitthvađ bull :)íris jónsdóttir

I dag fékk ég upp í kok af krepputali er að segja ykkur að í nafni kreppu er búið að keyra hinn almenna borgara í algjöran hnút

Þannig að í dag ákvað ég að vera með uppsteyt og gefa skít í kreppu og hugsa um allar lexíur sem ég get tekið út úr þessu ......
Með þessu er ég ekki að gera lítið úr þeim sem hafa misst sinn ævisparnað og jafnvel allt sem gerir það að verkum að fólk fúnkeri í þessu lífi ..vinna , húsaskjól og þess háttar

Ég er að tala um að missa sjónar á því sem skiftir máli börnin mín ...móðir mín...vinir...og allt það sem gera mig hamingjusama ...

Ég er búin að læra það t.d að það er hægt að fara i ýmis gjaldþrot ekki bara fjárhagslega    ég var á góðri leið til að missa vitið af áhyggjum vegna vinnu ....hvað ef ég hætti að ná endum saman hvað ef ég myndi missa vinnuna og endalausar pælingar og best að djöflast nógu mikið til að ....til að hvað .......

Sit með óendalega mikið af vinnutímum en algerlega búin á líkama og sál svo ég geti keypt aðeins meira ....

Ok lánin mín  hafa hækkað,  drulludýrt að versla , bílinn borðar bensínið og sonurinn er eflaust með falda stera inn á herbergi miðað við hvernig fötin verði minni og minni á örskotsstund sem þýða meiri útgjöld

En áttaði mig á einu að ég er heppin ég fattaði að sama hve útlitið getur verið dökkt þá eru alltaf leiðir til að bæta úr hlutunum

fjárhagslega eyða minna ég þarf í alvöru ekki allt þetta dót ...ég þarf í alvöru ekki þetta borð akkúrat núna og meðan að ég get fætt og klætt börnin mín og knúsað þau og sagt þeim að ég elski þau þá ætla ég að vera sátt , hugrökk og klára þetta

úff allt of heavy voða er ég orðin djúp allt í einu ........

Ok yfir i annað hún dóttir mín yngismeyjan er að verða 17 ára gömul og ég er búin að vera hissa á hverju ári sem líður yfir hve þessi blessuð börn eldast hratt áður en ég veit þá er litla trippið orðin að duglegri , gullfallegri (svaka góð gen í kvenlegg :) ungri konu sem er bara á hraðri leið út i lífið og systirin fast á eftir ......sem betur fer á ég einn gullmola sem elskar mömmu sína og vill hvergi annars staðar vera oftast

Að hugsa sér ég var ekki nema ári eldri þegar þessi dama mætti á svæðið ...

sem betur fer er hún ívið skynsamari en ég var þá Innocent
En gat sagt að það besta sem gerðist fyrir mig þá var að eignast hana ....hún bjargaði mér
 fékk mig til að opna augun og sendi mig af stað með þá vissu að lífið bauð upp á svo margt mikið meira en það sem ég hélt að skifti máli þá

En er búin að láta þær systur vita að ég myndi gjarnan vilja að ég yrði ekki gerð að ömmu á næstu árum þar sem ég er bara of kool í augnablikinu haha




PS:   En er að spá í að hafa jólaskrautið fram á næstu jól ....sko vinnusparnaður :) 
Bið að heilsa í bili over and out Britney

jćja BLOGGA koma svo ........íris jónsdóttir

Síðustu daga fæ ég alveg brilliant hugmyndir að bloggum en eftir vinnudag eldamennsku og dash af unglingaveiki (hjá mér) þá er ég búin að gleyma þeim og enda  bara á því að hanga á facebook....

Ein hugmyndin var t.d sparnaðarráð þar sem allt var og er að fara til helvitis.....

T.d Þessi fjxxxxxx( verð að vanda mig unglingarnir detta stundum inn að tékka hvort ofurmamma sé nokkuð að ganga af vitinu,)
já áfram einn sokkurinn komst nefnilega að því að það glíma við fleiri við þetta vandamál en ég ...
Í stað þess að henda heilum gám af einum sokk reglulega þá held ég bara sokkaparty allar að mæta með sokkana sína sem finna ekki maka og reddum þessu og spörum einhverja þúsundkalla þar

Annað tók þá ákvörðun að versla bara tilboðskjöt í bónus alger snilld sem er svo hent bara í frystirinn nema gúllas er búin að fatta út af hverju það er sett á tilboð jakk

Svo voru fleiri ráð sem gleymdust í unglingaveikinni ...

Svo var svona þakklætisblogg sem ég gleymdi að koma hér á netið
Eitt sem ég ætlaði að þakka fyrir er án efa í fyrsta skipti sem ég  er svo þakklát fyrir að hafa ekki átt mikið meira en bót fyrir boruna og ogguoggulítinn sparnað     
 því ef ég hefði verið rík hefði ég eflaust misst mig í hlutabréfabraski og sæti núna grátandi með hor í nös Svalur
Svo ég er þakkkát fyrir að vera skítablönk ............

Þannig að nú eru komin sýnishorn af þeim bloggum sem ég ætlaði að blogga undanfarið og í mínum huga voru þau hrikalega löng og ótrúlega fyndin

Hei eitt enn fékk bónorð um daginn á facebook myndavélasali í Bombay vildi giftast mér hann erum sextugt er bara svo picky sagði nei ...........

ladiladida Britney og Kevin eru ađ fara í ráđgjöf ...........íris jónsdóttir

Jæja Ezzkurnar hef dottið í fíkn ,......................FACEBOOK verkfæri djöfulsins

Er að segja ykkur það allt í einu hrannast þvotturinn enn frekar upp maturinn er ekki eldaður og tekjur Thai koon og Hamraborgar rjúka upp
Ræð ekki við neitt vakna á morgnana ákveðin að verkfæri hans sogi mig ekki til sín
En nei eftir smá tíma er ég föst i viðjum facebook  VERKFÆRI DJÖFULSINS Öskrandi


Djók ótrúlega gaman er facebook vinur dóttir minnar sem notar síðuna til að biðja um mat ......
Þarf bara ekkert að tala við mig lengur

Annars er ég komin með vinnuleiða , djammleiða , ísafjarðarleiða og ljótuna annars hef ég það fínt
Langar að opna búð á Krít við ströndina og búa í húsi eins og Meryl Streep í mamma mia
Úff finn ekki bloggbjánann í mér bið að heilsa í bili

Litla Ljót biður að heilsa Ullandi





Komnir betri tímar , blóm í haga eđa haustlauf what ever ......íris jónsdóttir

Er mikið búin að vera að pæla í að taka út síðustu færslu , eftir að ég skrifaði hana læsti ég síðunni var ekki tilbúin að deila þessu með neinum hugsunin á bak við þessi skrif var að fá útrás fyrir pirringinn og þreytuna
Eflaust hef ég skammast mín líka .................

En núna þegar maður er komin niður á jörðina þá fór ég að velta því fyrir mér út af hverju ég ætlaði að taka færsluna út
Ýmsar ástæður koma í hugann
Fyrst og fremst að ég var að ræða um viðkvæm mál en fór þá að pæla eru ekki ótrúlega margir sem eru á sama stað

Skömmin yfir ekki að halda ekki koolinu 24/7 og noda bene höfum það á hreinu dóttirin er ekki í dópi eða ólétt
heldur verið að syrgja og breytast í unga konu með dash af adhd sem er smá meira bras en margir halda

svo gess og vel kíkið á en öll él birtir um síðir og hafa einnig gert hjá dömunni og mér :)

Kv Bridget í jafnvægi ..........allaveganna núna :)

púff ....................................íris jónsdóttir

Jæja er nokkuð viss um að fólk sé hætt að skoða bloggið mitt svo það er um að gera að láta vaða .....

Úff hafið þið einhvern tímann verið út á sjó í miklum öldugangi , allaveganna er tilfinningarnar hjá mér búnar að vera þannig undanfarið
Er orðin svolítið þreytt á þessu langar í smá jafnvægi

Er búin að vera hrædd , kvíðin og uppburðarlítil undanfarið eiginlega svolítið lengi
en stundum á milli frekar hipp kool og kærulaus :)
held að þetta sé komið en svo kemur eitthvað sem triggerar allt öldurótið aftur
Vona að það sé að verða einhver lending hjá mér að daman mín sé að komast á betra stað þar sem hjartað hennar einkennist af hversdagslegum vandamálum .
hef vaðið áfram talað við þá sem ég held að geti hjálpað fæ misgóð svör mörg samt betri en önnur
Sá friðinn í augum hennar í fyrrakvöld í fyrsta skipti í dágóðan tíma og mér letti vongóð um að litla ljúfan mín sé komin aftur

Í gær upplifði ég ótta gagnvart umhverfinu sterkan í langan tíma er búin að vera þreytt lengi , hrædd og sorgmædd
En hef tekið íslensku leiðina á þetta upp með koolið og þrauka verst að hún skellur svo oftast í bakið á manni aftur ......
Ég er svo þreytt búin að vera lengi og samviskubitð mitt í að vera ekki betri mamma , betri húsmóðir , betri vinur og betri allt verið að þjaka mig

Í gær fannst mér ég vera einmana þó ég stæði með hóp að fólki sem ég á að tengjast þá var ég samt svo einmana það þarf ekki nema eina óheppilega setningu til að litla hjartað er enn minna og koolið gjörsamlega horfið .

í nótt komst ég að því að ég er ansi góð mamma og einnig að ég er góður vinur og vonandi kemst ég að fleiri góðum hlutum sem koma mér á réttan stað aftur .

Er þreytt á þessum fjandans öldugangi langar í lygnan sjó í bili
Svo ef einhver á uppskrift endilega sendið mér

Ps ekki Secret samt á þá bók

Gess og vel eitt stk vælublogg ........bridget á sjó

Klukk klukk hvađ .......íris jónsdóttir

Jæja Tinna klukkaðði mig grunar að það sé leið til að plata mig í 1 blogg eða 2....

Gess og vel

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

1.Stuðningsfulltrúi

2. Gengilbeina

3. flokkstjóri í vinnuskóla ......

4. skrifstofublók

Fjórar uppáhalds kvikmyndir .


1. Mama mia

2.Dirty dancing

3.Bridget Jones (halló nafnið á blogginu)

4.Top Secret (vel falið en besta mynd með Val kilmer sem ég hef séð)


Fjórir staðir sem ég hef búið á .

Af nógu er að taka


1. Hraunprýði ólst þar upp og bý þar núna ...

2.Asparfell í himinn hárri blokk

3. Suðurbraut Hafnarf.

4.Aðalstræti

Fjórir þættir sem mér líkar

1.family guy

2.Eurika

3.C.S.I

4. Desp.  housewifes

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

1.Tenerife

2. Mývatn

3.Kaupmannahöfn

4.Akureyri

Fjórar síður sem ég skoða reglulega fyrir utan blogg

1.bb.is

2.mbl.is

3.Facebook

4.visir.is

fernt sem ég held upp á matarkyns

1. Kjötsúpa ala mamma

2.Hamborgari

3.kjúklingur

4.Tertur

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

1. Tommi tjú tjú

2.Sjóræningjar kunna ekki að skipta um bleyju

3.Secret

4.Skipuleggðu tímann

Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna

1.Krít

2.Í sumarbústað

3.í ljósalampa

4.sófanum

 Og ég klukka eftirfarandi skvísur .
lindape.bloggar.is

Metis.bloggar.is

Afsprengill.bloggar.is

Kristínsig.bloggar.is

Over and out Bridget....................








Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíđukubbur

Könnun

Strengdir ţú áramótaheit

Prófíll

  • Nafn: íris jónsdóttir
  • Stađur: Ísafjörđur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: íris jónsdóttir
  • Stađur: Ísafjörđur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special!

Klukkan

Atburđarteljari